Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   lau 21. febrúar 2026 20:31
Ívan Guðjón Baldursson
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
Mynd: Stockport County
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Benoný Breki Andrésson er búinn að vera frá keppni vegna meiðsla í tæpan mánuð og hefur verið að fylgjast með Stockport County úr stúkunni.

Stockport leikur í þriðju efstu deild enska boltans og vann 4-2 gegn Wigan í dag eftir dramatískar lokamínútur. Liðið er í góðri stöðu í umspilssæti um sæti í Championship deildinni fyrir næstu leiktíð með 56 stig eftir 32 umferðir.

„Ég er búinn að taka gifsið af mér og á að byrja í endurhæfingu á morgun," sagði Benoný í viðtali við Fótbolta.net eftir sigur Stockport.

„Þetta var rosalegur leikur, við fáum sjaldan svona mikið af mörkum í leikjunum okkar. Við byrjuðum ekkert sérlega vel en seinni hálfleikurinn var mjög góður og við kláruðum leikinn almennilega."

Það var nokkuð af Íslendingum á vellinum sem fóru með í fótboltaferð Fótbolta.net og upplifðu þeir frábæra stemningu.

„Stemningin er alltaf mjög góð, sérstaklega þegar við skorum sigurmark seint eins og í dag."

Benoný segir að það sé erfitt að horfa á leikina úr stúkunni því hann langi svo mikið að koma inn til að hafa áhrif, en hann skoraði eitt mark og gaf stoðsendingu í síðustu fjórum leikjunum áður en hann meiddist.

„Maður vill koma inn og hjálpa liðinu að klára svona leiki en ég þarf bara að halda áfram að vera jákvæður. Það tekur á hausinn að vera svona meiddur, sérstaklega þegar þú ert að koma til baka þá tekur það á hausinn að komast aftur í sitt form. Núna tekur bara við smá tími í endurhæfingu."
Slapp
banner