Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   lau 21. mars 2020 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Guardian 
Andy Carroll og liðsfélagar borguðu aðgerð fyrir liðsstjórann
Andy Carroll.
Andy Carroll.
Mynd: Getty Images
Andy Carroll hefur fengið dágóðan skammt af gagnrýni síðustu árin - sumt af því hefur hann átt skilið - en George Ramshaw vill ekki heyra neitt slæmt sagt um þennan sóknarmann Newcastle.

Tveimur vikum áður en hlé var gert á ensku úrvalsdeildinni út af kórónuveirunni sneri Ramshaw aftur til vinnu á æfingasvæði Newcastle. Hann er aðstoðarliðsstjóri hjá félaginu.

Hann sneri aftur til vinnu eftir að hafa farið í mjaðmaraðgerð, þökk sé Carroll og öðrum leikmönnum Newcastle.

Carroll stóð fyrir söfnun á meðal leikmanna félagsins. Það söfnuðust 15 þúsund pund, eða tæplega 2,5 milljónir íslenskar krónur. Ramshaw gekkst undir aðgerðina og voru leikmennirnir ánægðir að sjá vin sinn aftur á æfingasvæðinu.

„George hefur verið hér frá því elstu menn muna," sagði Steve Bruce, stjóri Newcastle. „Leikmennirnir borguðu fyrir mjaðmaraðgerðina hans. Það var mjög fallega gert hjá þeim. Oft eru sagðir andstyggilegir hlutir um fótboltamenn, en þeir hjálpuðu honum."

„Ég held að þetta hafi upprunalega verið hugmynd Andy Carroll sem hefur lengi þekkt George."

Bruce sagði að aðgerðin hefði tekist vel og að Ramshaw hefði verið hoppandi um á æfingasvæðinu. „Ég hélt að hann myndi byrja að spila fljótlega," sagði Bruce léttur.

Ramshaw sagði sjálfur: „Ég og eiginkona mín erum bæði mjög þakklát. Mér líður frábærlega núna."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner