Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá PAOK í 3-1 sigri gegn AEK Aþenu í grísku úrvalsdeildinni í kvöld.
Sverrir átti stoðsendingu að fyrsta marki leiksins sem Andrija Zivkovic skoraði fyrir PAOK.
AEK jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleik en PAOK mættu vel út í seinni hálfleikinn og náðu að endurheimta forystuna eftir nokkrar sekúndur í seinni hálfleiknum.
Zivkovic innsiglaði svo sigurinn með öðru marki sínu á 89. mínútu leiksins.
PAOK er núna í þriðja sæti deildarinnar, 20 stigum á eftir toppliði Olympiakos. Ögmundur Kristinsson var ekki í hóp hjá Olympiakos í 1-0 sigri á Aris í dag.
Bæði Sverrir og Ögmundur fara núna til móts við íslenska landsliðshópinn. Ísland er að fara að spila sína fyrstu þrjá leiki í undankeppni HM.
Athugasemdir