Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. mars 2023 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Napoli biður um risastóra upphæð fyrir Osimhen
Victor Osimhen.
Victor Osimhen.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Victor Osimhen mun ekki fara ódýrt frá ítalska félaginu Napoli í sumar.

Nígeríski sóknarmaðurinn hefur slegið í gegn á þessu tímabili. Hann hefur alls gert 25 mörk í 29 keppnisleikjum fyrir Napoli sem er svo gott sem búið að vinna Serie A. Þá er liðið einnig komið í átta-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Osimhen hefur verið mikið orðaður við Manchester United og er Chelsea einnig sagt renna hýru auga til hans.

Hann verður hins vegar mjög dýr fyrir félagið sem kaupir hann því Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, er búinn að setja 150 milljón evra verðmiða á hann.

Il Mattino greinir frá því að Napoli muni ekki einu sinni hlusta á tilboð sem eru undir þeim verðmiða.

Osimhen er sagður spenntur fyrir ensku úrvalsdeildinni en hann er samningsbundinn Napoli til 2025.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner