„Alltaf leiðinlegt að tapa leikjum, ég er mest svekktur með frammistöðuna," sagði Arnar Grétarsson, þjálfari KA, eftir tap gegn Víkingi í dag.
„Við vorum mjög slakir í fyrri hálfleik, við vorum aðeins meira inn í leiknum í seinni en fyrst eftir að þeir skora markið þá vöknum við."
KA fékk vítaspyrnu undir lok uppbótartíma. Hallgrímur Mar Steingrímsson tók vítið en þrumaði yfir markið.
„Auðvitað er maður svekktur að fá víti í uppbótartíma og skjóta yfir. Þú vilt alltaf frekar að markmaðurinn verji heldur en þetta, þó það sé alveg jafn vont þannig séð. Þú átt aldrei möguleika á að skora ef þú hittir ekki markið."

Lestu um leikinn: KA 0 - 1 Víkingur R.
„Heilt yfir var frammistaðan fram að markinu arfaslök, mér fannst hún ekki góð."
Hvað var öðruvísi við að mæta Víkingum miðað við Keflvíkinga í síðasta leik þar sem liðið skoraði fjögur?
„Ég veit það ekki, nú eru komnir einhverjir leikir, búið að vera eitthvað umtal og mér fannst menn einhvern veginn ekki klárir í þennan leik," sagði Arnar.
Viðtalið í heild má sjá hér að ofan. Hann var spurður út í mögulegt víti í fyrri hálfleik, liðsvalið, mögulega breytingu á vítaskyttu og valið á Brynjari Inga Bjarnasyni í A-landsliðið.
Athugasemdir