Öflug dagskrá í kringum grannaslaginn á Selfossi

Mynd: Facebook

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Facebook
Það verður sannkallaður grannaslagur á Selfossi í kvöld er Selfoss og Árborg mætast í 16-liða úrslitum Gatorade bikars Fótbolta.net.
Selfyssingar spila í 2. deild en Árborg leikur í 4. deild. Árborg er venslalið Selfoss og hefur fjöldi leikmanna spilað með báðum liðum á síðustu árum.
Leikurinn sjálfur verður styrktarleikur fyrir Helgu Guðmundsdóttur en hún glímir við illvígt krabbamein. Að ósk Helgu mun allur ágóði af leiknum renna óskertur til heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.

Af þessu tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá á Selfossi. Þjálfarar liðanna munu fara yfir leikinn og kynna sín lið.
Þá verður úrvalslið skipað leikmönnum sem hafa leikið fyrir bæði Selfoss og Árborg opinberað og ýmsar þrautir og uppákomur verða í hálfleik fyrir áhorfendur.