Fotbolti.net
21.05.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 5. umferðar - Er að slá í gegn

Hrafnhildur Ása er að slá í gegn.

Hrafnhildur Ása er að slá í gegn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fimmta umferð Bestu deildar kvenna fór fram í heild sinni í gær. FH var þar fyrsta liðið til að taka stig af ÍBV og á þar með þrjá fulltrúa í liði umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar.

Hin bráðefnilega Ingibjörg Magnúsdóttir var maður leiksins og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir átti einnig mjög góðan leik í 3-0 sigri FH-inga. Guðni og Hlynur Eiríkssynir eru þá þjálfarar umferðarinnar.
Sterkasta lið 4. umferðar - Tvær úr Val
TENGT EFNI

Sterkasta lið 4. umferðar - Tvær úr Val



Sigríður Theódóra Guðmunsdóttir fór fyrir liði Þróttara sem unnu 1-4 sigur á Víkingum og á Þróttur einnig þrjá fulltrúa í liði umferðarinnar. Mist Funadóttir og Jelena Tinna Kujundzic eru einnig í liði umferðarinnar.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir er í liði umferðarinnar í fjórða sinn í sumar, af fimm mögulegum skiptum, og er að slá í gegn. Kristín Dís Árnadóttir og Edith Kristín Kristjánsdóttir, liðsfélagar hennar, eru líka í liðinu eftir góðan 1-3 sigur Breiðabliks gegn Þór/KA.

Þá voru tvö jafntefli í umferðinni. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir bjargaði stigi fyrir Stjörnuna gegn Grindavík/Njarðvík þar sem Lily Anna Farkas var þó besti maður vallarins. Tinna Brá Magnúsdóttir var þá maður leiksins í bragðdaufu jafntefli Vals og Fram.
Ingibjörg er efnilegur leikmaður.

Ingibjörg er efnilegur leikmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingibjörg Lúcía bjargaði stigi fyrir Stjörnuna.

Ingibjörg Lúcía bjargaði stigi fyrir Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Bæði lið áttu núll stig skilið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.