Fotbolti.net
21.06.19 - 21:24
Alexandra Bía Sumarliðadóttir

Bryndís Rut: Hjartað er á fullu og maður bara gerir sitt besta

Auglýsing
Bryndís Rut fyrirliði Tindastóls

Bryndís Rut fyrirliði Tindastóls

Canon

Mynd: Aðsend

Hertz
Tindastóll sótti þrjú stig í Kópavoginn í kvöld þegar þær fóru með 0-1 sigur á Augnabliki. Fyrirliðinn Bryndís Rut var glöð eftir leik.



„Það er bara gleðitilfinning, ég er bara rosalega ánægð með liðið og við stóðum saman, héldum áfram þó við höfum duttið aðeins niður á kafla og bara það var karakter í liðinu. Ég er virkilega ánægð með mínar stelpur, minn hóp." sagði Bryndís þegar hún var spurð um sín fyrstu viðbrögð eftir leik.



Augnablikskonur lágu í sókn undir lok leiks og Bryndís viðurkenndi að það hefði verið stressandi að halda þetta út.



„Já,já ég viðurkenni það alveg. Hjartað er á fullu og maður bara gerir sitt besta og og þetta var æðislegt að klára þetta."
Næsti leikur Tindastóls er bikarleikur gegn KR. „Við erum rosalega spenntar. Við hugsum einn leik í einu og erum rosalega spenntar fyrir næsta leik."



Bryndís segir að þær séu ánægðar með stigasöfnunina það sem af er móts.



„Já við erum mjög ánægðar með þetta. Við erum búnar að ná því sem við erum búnar að leggja upp í raun og veru og erum bara ánægð með hvert stig sem við fáum." sagði Bryndís að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.