Fotbolti.net
11.07.26 - 10:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkust í 10. umferð - Klárar hún tímabilið á Íslandi?

Ída Marín Hermannsdóttir.

Ída Marín Hermannsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ída Marín Hermannsdóttir er að sjálfsögðu sterkasti leikmaðurinn í tíundu umferð Bestu deildar kvenna eftir að hafa skorað fimm mörk í 7-3 sigri FH gegn Þrótti Reykjavík.

Þróttur komst í 0-2 í leiknum en þá tók Ída Marín til sinna ráða og sneri leiknum við. Hún skoraði þrennu á fimm mínútum og var búin að gera fimm mörk eftir tæplega klukkutíma leik.
Víðir Sig: 10. umferð Bestu deildar - Ída nálægt 50 ára meti og tvær náðu stórum áföngum
TENGT EFNI

Víðir Sig: 10. umferð Bestu deildar - Ída nálægt 50 ára meti og tvær náðu stórum áföngum

„Lék á als oddi og var á góðri íslensku gjörsamlega unplayable," skrifaði Elíza Gígja Ómarsdóttir í skýrslu sinni frá leiknum.

„Skorar þrennu á fjórum mínútum í fyrri hálfleik og bætir við tveimur í viðbót í þeim seinni. Er orðuð við atvinnumennsku þessa dagana en það er bara spurning um hvenær en ekki hvort hún fer út.

Ída Marín hefur átt frábært sumar með FH og er núna markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar með átta mörk. Hún er undir smásjá margra félaga erlendis og spurning er hvort hún klári tímabilið með FH.

„Ég er með frelsi til að vera ég sem leikmaður hvar sem það er á vellinum. Þó að ég sé í tíunni eða sexunni, þeir bara treysta mér að klára mitt verkefni og já, bara geggjaðar stelpur, geggjaðir þjálfarar," sagði Ída Marín eftir leikinn gegn Þrótti en hún vildi ekkert tjá sig um það hvort hún væri á leið út.

Það er meðal annars áhugi á henni frá Bandaríkjunum og Spáni en spennandi verður að sjá hvert hennar næsta skref verður á ferlinum.
Ída Marín og systir hennar Thelma Lóa.

Ída Marín og systir hennar Thelma Lóa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er sterklega orðuð við félög erlendis.

Er sterklega orðuð við félög erlendis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.