Lengjudeildin: Stórbrotið mark tryggði Völsungi stig

Dagbjartur Búi skoraði eitt af mörkum sumarsins

Mynd: Völsungur

ÍR 4 - 4 Völsungur
1-0 Bergvin Fannar Helgason ('19 )
2-0 Víðir Freyr Ívarsson ('21 )
2-1 Andri V. Bergmann Steingrímsson ('26 )
3-1 Bergvin Fannar Helgason ('40 , víti)
3-2 Gestur Aron Sörensson ('55 )
3-3 Fernando Jimenez Arranz ('64 )
4-3 Víðir Freyr Ívarsson ('66 )
4-4 Dagbjartur Búi Davíðsson ('70 )
Lestu um leikinn

ÍR og Völsungur buðu upp á sannkallaðan markatrylli þegar liðin gerðu 4-4 jafntefli í 10. umferð Lengjudeildarinnar á Þarfaþingsvelli í Breiðholti í dag.
Breiðhyltingar gátu varla beðið um betri byrjun. Bergvin Fannar Helgason og Víðir Freyr Ívarsson komu ÍR í 2-0 með mörkum með tveggja mínútna millibili.
Bergvin Fannar skoraði með skalla eftir þunga sókn áður en Víðir Freyr bætti við öðru marki eftir sendingu frá Ágústi Unnari Kristinssyni.
Andri V. Bergmann Steingrímsson kom Húsvíkingum aftur inn í leikinn. Hann fékk boltann við D-bogann, lagði hann fyrir sig og setti hann snyrtilega alveg út við stöng.
ÍR kom sér aftur í tveggja marka forystu á 40. mínútu. Víðir setti boltann í hönd varnarmanns Völsungs og vítaspyrna var dæmd. Bergvin Fannar fór á punktinn og skoraði af öryggi.
Gestirnir svöruðu af krafti í byrjun síðari hálfleiks. Gestur Aron Sörensson minnkaði muninn eftir undirbúning Elfars Árna Aðalsteinssonar og níu mínútum síðar jafnaði Fernando Arranz með skalla eftir hornspyrnu.
Völsungur var hársbreidd frá því að komast yfir skömmu síðar eftir mikið bras í vörn ÍR en gestirnir fóru illa með góða stöðu. ÍR-ingar refsuðu í kjölfarið þegar skot Emils Nóa Sigurhjartarsonar breyttist í stoðsendingu fyrir Víði, sem skoraði sitt annað mark og kom ÍR í 4-3.
En Húsvíkingar voru ekki hættir. Þeir svöruðu enn og aftur og það með flottasta marki leiksins. Aukaspyrna var skölluð út úr teignum og þar beið Dagbjartur Bui Davíðsson. Hann bakkaði aðeins, náði boltanum fullkomlega á lofti og hamraði hann í netið. Mark sem hlýtur að koma sterklega til greina sem mark tímabilsins.
Völsungur er áfram á botni deildarinnar með sex stig, einu stigi frá öruggu sæti, á meðan ÍR er í 9. sæti með ellefu stig.

Þvílíkt skot! #Lengjudeildin #Livey pic.twitter.com/R7LX2VHF1K
— Sverrir Ö Einarsson (@SEinarsson) June 21, 2026