Ten Hag vill fá fyrrum lærisvein sinn hjá Man Utd

Erik ten Hag

Mynd: EPA

Erik ten Hag

Mynd: EPA
Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United, segist vilja fá fyrrum lærisveinn sinn hjá félaginu til hollenska félagsins Twente.
Ten Hag, sem var rekinn frá Man Utd í október 2024 eftir að hafa stýrt liðinu í rúm tvö ár, fékk framherjann Wout Weghorst á láni frá Burnley snemma árs 2023.
Weghorst spilaði með liðinu í hálft tímabil áður en hann hélt til Hoffenheim um sumarið.
Weghorst er 33 ára gamall og nú á mála hjá Ajax í Hollandi, en Ten Hag, sem tók við sem yfirmaður tæknimála hjá Twente fyrir skömmu, segist ólmur vilja endurnýja kynni sín við framherjann.
„Við hjá Twente höfum eðlilega mikinn áhuga á að fá Wout Weghorst. Hann er strákur með sterkar Twente-rætur og við erum ótrúlega stoltir af öllu sem hann hefur afrekað.
„Ég hef þekkt Wout og fjölskyldu hans í mjög langan tíma þannig að sjálfsögðu væri ég til í að fá hann í liðið. Hver væri ekki til í framherja eins og Wout? Hann er einbeittur á HM þar sem hann vill verða heimsmeistari. Verðum við að bíða? Já, við munum bíða eftir Wout,“ sagði Ten Hag, en hann er sérfræðingur hjá sjónvarpsstöðinni NOS á meðan heimsmeistaramótið stendur yfir.