Þessir voru bestir í fyrstu umferðinni að mati stuðningsmanna

Vozinha var besti markvörðurinn

Mynd: EPA

Lionel Messi er besti sóknarmaðurinn

Mynd: EPA

Vozinha var besti markvörðurinn

Mynd: EPA
Alþjóðafótboltasambandið FIFA hefur birt nöfn þeirra fjögurra leikmanna sem þóttu bestir í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins, en kosningin fór fram á netinu.
Á vef FIFA geta stuðningsmenn valið bestu leikmenn hverrar umferðar á HM. Kosið er um besta markvörðinn, varnarmanninn, miðjumanninn og sóknarmanninn.
Flestir völdu Vozinha, markvörð Grænhöfðaeyja, sem besta markvörð fyrstu umferðarinnar. Hann spilaði líklega stærsta leik lífs síns gegn Evrópumeisturum Spánverja og átti um leið einn besta leik ferilsins.
Vozinha var traustur í markinu, varði allt sem rataði á rammann og var að lokum valinn maður leiksins af FIFA. Frammistaðan vakti mikla athygli og hefur síðan verið mikið rætt og ritað um áhrifin sem hún hafði, en fylgjendum hans á samfélagsmiðlum fjölgaði gríðarlega í kjölfarið.
Vozinha, sem er fertugur, vann einnig hjörtu margra eftir leikinn. Þar talaði hann opinskátt um að hafa alist upp hjá ömmu sinni og afa og sagðist sorgmæddur yfir því að móðir hans hefði ekki fengið vegabréfsáritun í tæka tíð og því misst af fyrsta leik hans á HM.
FIFA hefur nú gengið frá því að hún verði klár í næsta leik Grænhöfðaeyja, sem fer fram aðfaranótt þriðjudags.
Besti varnarmaður umferðarinnar að mati stuðningsmanna er Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool og hollenska landsliðsins. Hann skoraði í 2-2 jafnteflinu gegn Japan, en hvort hann hafi raunverulega verið besti varnarmaður fyrstu umferðarinnar verður að fá að liggja á milli hluta.
Miðjumaður umferðarinnar er Michael Olise, leikmaður Bayern München og Frakklands. Hann var ágætur í fyrri hálfleik gegn Senegal, en skein skært eftir að hann var færður fyrir aftan framherjann í þeim síðari og lagði þá upp tvö mörk.
Lionel Messi var síðan valinn besti sóknarmaðurinn. Argentínumaðurinn skoraði öll þrjú mörkin í 3-0 sigri á Alsír og jafnaði markamet Miroslav Klose á HM. Vel að þessu kominn.

The fans have spoken. These players currently top the Dream XI vote after Round 1. ?#FIFAWorldCup #DreamXI @aramco pic.twitter.com/pRNw4mZpXp
— FIFA World Cup (@FIFAWorldCup) June 20, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!