Fotbolti.net
21.07.22 - 22:23
Ingi Snær Karlsson

Siggi Víðis: Mjög góðir og á móti frábæru liði

Auglýsing
Sigurður Víðisson, þjálfari KV

Sigurður Víðisson, þjálfari KV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Mér fannst hann bara frábær, mjög góðir og á móti frábæru liði." sagði Sigurður Víðisson eftir 3-2 tap gegn Fylki í Lengjudeild karla.
Þú hlýtur að vera sáttur með að komast tvívegis yfir gegn Fylki?

„Já mjög, við vorum bara flottir. Svo kom svona smá kafli í seinni hálfleik þar sem við erum að ströggla og fengum á okkur tvö og komum tilbaka í lokin og gerðum fína atrennu. Náðum ekki að klára bara."

Var fúlt að taka ekki stig út úr þessu leik?

„Já þetta er svona svipað og Selfoss, við vorum alveg inn í leiknum allan tímann og töpum samt. Það er dapurt. Frábær frammistaða hjá mínu liði."

KV hafa misst þó nokkra leikmenn frá sér og fleiri að fara á næstunni í nám.

„Það kemur maður í manns stað. Það er ekkert flókið í fótbolta. Við erum með fullt af ungum strákum sem fá bara að spila."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.