Fotbolti.net
21.08.25 - 22:18
Ívan Guðjón Baldursson

Jóhann: Ekki mörg lið sem geta haldið þeim niðri

Auglýsing
Jóhann: Ekki mörg lið sem geta haldið þeim niðri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Jóhann Kristinn Gunnarsson var hress eftir stórsigur Þórs/KA gegn FHL í Bestu deild kvenna fyrr í kvöld.
Þór/KA skóp 4-0 sigur og klúðraði vítaspyrnu og er liðið í fimmta sæti deildarinnar, með 21 stig eftir 14 umferðir.

„Frábær sigur á móti mjög góðu liði en mér fannst okkar leikmenn kæfa hraðann og gæðin hjá þeim að mestu niður, en það sáu allir að það glitti í þetta. Þetta er alveg skelfilega hættulegt lið, þær eru með tvo af hröðustu leikmönnum deildarinnar sem er mjög erfitt að eiga við. Þess vegna er ég ógeðslega ánægður með mínar stelpur í dag," sagði Jóhann Kristinn eftir sigurinn þægilega.

„Ég er ekki viss um að það séu mörg lið í deildinni sem geta haldið þeim niðri frá fyrstu mínútu til þeirrar nítugustu eins og við gerðum svona stóran hluta í báðum hálfleikum í dag. Þær hafa verið að meiða undanfarið, í síðustu þremur leikjum eða svo."

Þetta var kærkominn sigur fyrir Þór/KA og Jóhann, enda fyrsti sigur liðsins í tvo mánuði. Akureyringar höfðu tapað þremur leikjum í röð fyrir sigurinn gegn FHL.

„Það eru sléttir tveir mánuðir í dag síðan við unnum síðast fótboltaleik, það er langur tími í lífi ungs manns og heils fótboltaliðs. Þetta eru alltof margar nætur sem þú ferð að sofa án þess að vinna. Þess vegna líður okkur vel núna og við ætlum að njóta þess og spá ekki neitt í deildina eða stöðuna eða neitt fyrr en í fyrsta lagi einhvern tímann uppúr mjöltum á sunnudegi."
Jóhann: Ekki mörg lið sem geta haldið þeim niðri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.