21.08.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
5. deild: Skallagrímur hafði betur í miklum markaleik

Mynd: Skallagrímur

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Mynd: Skallagrímur
KFS 3 - 5 Skallagrímur
0-1 Gunnar A. Scheving ('4 )
1-1 Junior Niwamanya ('14 )
2-1 Kristján Ægir Eyþórsson ('23 )
2-2 Sveinn Mikael Ottósson ('27 )
2-3 Carlos Javier Castellano ('67 )
3-3 Junior Niwamanya ('72 )
3-4 Baldvin Freyr Ásmundsson ('75 )
3-5 Lúkas Viktorsson ('86 )
0-1 Gunnar A. Scheving ('4 )
1-1 Junior Niwamanya ('14 )
2-1 Kristján Ægir Eyþórsson ('23 )
2-2 Sveinn Mikael Ottósson ('27 )
2-3 Carlos Javier Castellano ('67 )
3-3 Junior Niwamanya ('72 )
3-4 Baldvin Freyr Ásmundsson ('75 )
3-5 Lúkas Viktorsson ('86 )
KFS og Skallagrímur áttust við í eina leik kvöldsins í 5. deildinni og hafði Skallagrímur betur eftir mikinn markaleik.
Staðan var jöfn 2-2 í leikhlé og tókst gestunum frá Borgarnesi að tryggja sér sigur með mörkum á lokakaflanum.
Lokatölur urðu 3-5 fyrir Skallagrím og deildu leikmenn liðsins mörkunum bróðurlega á milli sín.
Junior Niwamanya var atkvæðamestur í tapliði KFS með tvennu.
Þetta var síðasti leikur Skallagríms þar til úrslitakeppnin hefst. Borgnesingar eru með +43 í markatölu og löngu búnir að tryggja sér þátttökurétt í umspili um sæti í 4. deild. Þeir geta þó misst toppsæti riðilsins til Smára sem er með +36 í markatölu fyrir lokaleik sinn.
Tvö efstu liðin í riðlinum fara áfram í umspilsleiki. 2. sæti úr B-riðli mætir 1. sæti úr A-riðli og öfugt.