21.08.26 - 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
England: Auðvelt fyrir Englandsmeistarana

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Arsenal 3 - 0 Coventry
1-0 Kai Havertz ('15 )
2-0 Bukayo Saka ('23 )
3-0 Martin Odegaard ('49 )
1-0 Kai Havertz ('15 )
2-0 Bukayo Saka ('23 )
3-0 Martin Odegaard ('49 )
Englandsmeistarar Arsenal tóku á móti nýliðum Coventry City í fyrstu umferð nýs úrvalsdeildartímabils á Englandi og skópu auðveldan sigur.
Kai Havertz skoraði úr auðveldu færi eftir góðan undirbúning frá Christos Tzolis og Riccardo Calafiori á vinstri vængnum og átta mínútum síðar tvöfaldaði Bukayo Saka forystuna eftir góða skyndisókn.
Tzolis fékk boltann á vinstri vængnum og átti lága fyrirgjöf sem Carl Rushworth markvörður Coventry sló út í teiginn, þar sem Saka var réttur maður á réttum stað og skoraði þægilega.
Coventry ógnaði meisturunum aldrei og var staðan 2-0 í leikhlé. Fyrirliðinn Martin Ödegaard innsiglaði sigurinn eftir góða sókn í upphafi síðari hálfleiks. Boltinn barst til Ödegaard í dauðafæri en Norðmaðurinn hitti hann illa og plataði þannig Rushworth, sem leyfði boltanum að leka í netið, alveg óvart
Hægt er að setja stórt spurningarmerki við Rushworth í tveimur seinni mörkum Arsenal, en heimamenn virtust aldrei skipta úr fyrsta gír í þessum leik. Þægilegur 3-0 sigur í höfn.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 1 | +3 | 3 |
| 2 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 3 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Hull City | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Man City | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Man Utd | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 18 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Coventry | 1 | -3 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |