21.08.26 - 20:28
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeild kvenna: Grótta með níu tær í Bestu

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Keflavík 0 - 1 Grótta
0-1 Shea Collins ('81)
0-1 Shea Collins ('81)
Keflavík og Grótta áttust við í eina leik kvöldsins í Lengjudeild kvenna og hélst staðan markalaus stærsta hluta leiksins.
Hvorugu liði tókst að skora á fyrstu 80 mínútunum en loksins setti Shea Collins boltann í netið á 81. mínútu til að ná forystu fyrir Gróttu.
Mark Collins reyndist það eina í leiknum og nægði til að tryggja þrjú stig fyrir Seltirninga, sem eru með níu tær í Bestu deildinni eftir þennan sigur.
Grótta er með 35 stig eftir 15 umferðir og nægja tvö stig úr síðustu þremur umferðunum til að gulltryggja sér sæti í efstu deild.
Keflavík er fimm stigum fyrir ofan fallsæti, með 17 stig eftir 15 umferðir.