21.08.26 - 19:58
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Afturelding skoraði sjö

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir 0 - 7 Afturelding
0-1 Bart Kooistra ('33 )
0-2 Joacim Emil Godhei Holtan ('45 , víti)
0-3 Haukur Örn Brink ('52 )
0-4 Joacim Emil Godhei Holtan ('54 )
0-5 Axel Óskar Andrésson ('58 )
0-6 Róbert Agnar Daðason ('84 )
0-7 Róbert Agnar Daðason ('89 )

Lestu um leikinn: Ægir 0 - 7 Afturelding
Botnlið Ægis tók á móti toppbaráttuliði Aftureldingar í fyrri leik kvöldsins í Lengjudeild karla og sást gæðamunur liðanna augljóslega.
Bart Kooistra skoraði fyrsta mark leiksins á 33. mínútu og tvöfaldaði Joacim Holtan muninn úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikhlé.
Gestirnir úr Mosfellsbæ gerðu út um einvígið á sex mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks. Haukur Örn Brink, Joacim Holtan og Axel Óskar Andrésson komust allir á blað með stuttu millibili svo staðan var orðin 0-5.
Róbert Agnar Daðason kom inn af bekknum skömmu eftir fimmta markið og bætti tveimur við á lokakaflanum, svo lokatölur urðu 0-7.
Afturelding endurheimtir toppsæti deildarinnar með þessum sigri. Mosfellingar eru með 39 stig eftir 19 umferðir, tveimur stigum fyrir ofan Þrótt R. í titilbaráttunni.
Afturelding á framundan heimaleiki við Gróttu og Vestra í tveimur af síðustu þremur umferðum deildartímabilsins, áður en liðið heimsækir Njarðvík í lokaumferðinni.