21.08.26 - 14:56
Fótbolti.net
Myndband: Youtube stjarna upplifði leikdag í Grindavík

Mynd: Youtube

Mynd: Youtube

Youtube stjarnan Ellis Platten ferðast um heiminn og fer á fótboltaleiki á AwayDays rás sinni. Á dögunum fór hann til Grindavíkur og var meðal áhorfenda á markalausu jafntefli Grindavíkur og Gróttu í Lengjudeildinni.
„Ég ferðaðist til Íslands til að heimsækja fótboltalið sem spilar við hliðina á eldfjalli," skrifaði Platten við myndbandið þar sem hann sýnir frá Íslandsför sinni.
„Ég kanna svæðið í kringum völlinn og tala við heimamenn um stöðuga ógn af eldvirkni. Við skoðum sögu þessa einstaka fótboltaliðs, þar á meðal tveggja ára rýmingartímabilið sem neyddi félagið til að yfirgefa heimabæ sinn alveg."
Sjón er sögu ríkari.