Fotbolti.net
21.08.26 - 14:55
Kári Snorrason

Paredes í tíu leikja bann eftir áflogin í úrslitaleiknum

Paredes dæmdur í tíu leikja bann.

Paredes dæmdur í tíu leikja bann.

Canon

Mynd: EPA

Argentínski landsliðsmaðurinn Leandro Paredes hefur verið dæmdur í 10 leikja bann af FIFA fyrir þátt sinn í stimpingum sem brutust út á vellinum eftir 1-0 tap Argentínu gegn Spáni í úrslitaleik HM í sumar.

Paredes kom inn á sem varamaður í hálfleik í úrslitaleiknum og var ekki lengi að fá gult spjald.

Eftir leik voru Argentínumenn blóðheitir og allt ætlaði um koll að keyra þegar Paredes hrinti Eric Garcia og veittist að öðrum leikmanni Spánar. Í kjölfarið fékk Paredes að líta rauða spjaldið.
Slagsmál brutust út eftir lokaflautið - „Paredes hefur verið til skammar"
TENGT EFNI

Slagsmál brutust út eftir lokaflautið - „Paredes hefur verið til skammar"

Aganefnd FIFA hefur einnig dæmt liðsfélaga hans, Nahuel Molina, í sjö leikja bann.

Argentínska fótboltasambandið hefur verið sektað um tæpar fjörutíu milljónir króna vegna skilaboða leikmanna og stuðningsmanna um Falklandseyjar eftir sigur liðsins á Englandi í undanúrslitum.

Þá má Argentína einungis selja helming miða í næstu tveimur heimaleikjum sínum. Annar leikurinn í þeirri refsingu er þó skilorðsbundinn.
Nahuel Molina fer í sjö leikja bann.

Nahuel Molina fer í sjö leikja bann.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.