21.08.26 - 23:54
Ívan Guðjón Baldursson
Óttar Magnús skoraði

Skoraði 13 mörk í 33 deildarleikjum með Renate á síðustu leiktíð, auk þess að gefa 3 stoðsendingar.

Mynd: Oakland Roots

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu víðsvegar um Evrópu í dag var Óttar Magnús Karlsson sá eini sem komst á blað utan landsteinanna.
Óttar Magnús skoraði eina mark Renate í 3-1 tapi í fyrstu umferð á nýju tímabili í C-deild ítalska boltans.
Í næstefstu deild í Hollandi fékk 19 ára Tómas Johannessen að spila seinni hálfleikinn í 3-1 tapi hjá varaliði AZ Alkmaar. Á sama tíma var Helgi Fróði Ingason í byrjunarliði Helmond sem gerði jafntefli við RKC Waalwijk. Jong AZ er með þrjú stig eftir þrjár umferðir, einu stigi meira en Helmond.
Í næstefstu deild danska boltans komu Ingimar Arnar Kristjánsson og Ólafur Dan Hjaltason inn af bekknum í markalausu jafntefli hjá Aarhus Fremad á útivelli gegn Fredericia. Aarhus er með 8 stig eftir 5 umferðir, einu stigi meira heldur en Álaborg sem tapaði gegn Hobro. Nóel Atli Arnórsson lék allan leikinn í varnarlínu AaB.
Að lokum var Atli Barkarson í byrjunarliði Sogndal sem vann átta marka stórsigur í 128-liða úrslitum norska bikarsins.
Alcione Milano 3 - 1 Renate
FC Emmen 3 - 1 Jong AZ
Helmond 1 - 1 Waalwijk
Fredericia 0 - 0 Aarhus Fremad
Hobro 2 - 1 AaB
Fjora 0 - 8 Sogndal