Fotbolti.net
21.08.26 - 20:48
Ívan Guðjón Baldursson

Ronaldo kom inn af bekknum og skoraði

Ronaldo kom inn af bekknum og skoraði
Canon

Mynd: EPA

Nýtt tímabil er farið af stað í efstu deild í Sádi-Arabíu og skópu ríkjandi meistarar Al-Nassr auðveldan sigur á útivelli í dag.
Brasilíumaðurinn ungi Angelo Gabriel skoraði og lagði upp í fyrri hálfleik áður en Joao Félix setti þriðja markið snemma í síðari hálfleik. Cristiano Ronaldo var svo skipt inn af bekknum og innsiglaði hann 0-4 sigur á lokakaflanum.

Al-Nassr er með sex stig eftir tvær umferðir, alveg eins og Neom SC sem vann í dag. Alexandre Lacazette, fyrrum leikmaður Lyon, Arsenal og franska landsliðsins, skoraði bæði mörk Neom í 0-2 sigri.

Al-Ittihad er með fjögur stig eftir mikinn heppnissigur í stórleik gegn Al-Qadsiah. Heimamenn í Al-Qadsiah óðu í færum en tókst ekki að skora.

Mateo Retegui, Julian Quinones, Julian Weigl og Nacho Fernández voru meðal byrjunarliðsmanna í liði heimamanna sem leikur undir stjórn Brendan Rodgers á meðan Houssem Aouar, Steven Bergwijn og Youssef En-Nesyri voru í byrjunarliði gestanna. Al-Qadsiah er með þrjú stig eftir tapið.

Að lokum unnu Idrissa Gana Gueye og félagar í liði Al-Diriyah á útivelli gegn Al-Hazem. Bæði lið eiga þrjú stig eftir tvær umferðir.

Al-Riyadh 0 - 4 Al-Nassr

Al-Faisaly 0 - 2 Neom SC

Al-Qadsiah 0 - 1 Al-Ittihad

Al-Hazem 0 - 1 Al-Diriyah
Ronaldo kom inn af bekknum og skoraði
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.