21.08.26 - 21:14
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Orri Steinn lék allan leikinn gegn Betis

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Real Betis 1 - 0 Real Sociedad
1-0 Rodrigo Riquelme ('63)
1-0 Rodrigo Riquelme ('63)
Orri Steinn Óskarsson lék allan leikinn í liði Real Sociedad sem heimsótti Real Betis í fyrstu umferð á nýju tímabili í efstu deild spænska boltans.
Orri Steinn átti ekki sérlega góðan leik þar sem lokatölur urðu 1-0 fyrir heimamenn í Sevilla. Rodrigo Riquelme skoraði eina markið með frábærri afgreiðslu á 63. mínútu, eftir góðan bolta frá Cucho Hernandez.
Orri Steinn fékk eitt af bestu færum leiksins en markvörður Betis varði. Fyrirliði Sociedad og heimsmeistarinn Mikel Oyarzabal kom inn af bekknum en tókst ekki að hafa áhrif á lokatölurnar.
Orri skoraði þrjú mörk í sex æfingaleikjum á undirbúningstímabilinu eftir að hafa sett 9 mörk í 20 deildarleikjum á síðustu leiktíð.