21.08.26 - 15:42
Elvar Geir Magnússon
Staðfesta Meistaradeildarfótbolta á Brúnni

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Chelsea hefur staðfest að úkraínska meistaraliðið Shaktar Donetsk muni spila heimaleiki sína í Meistaradeild Evrópu á Stamford Bridge á þessu tímabilil.
„Við erum þakklát Chelsea fyrir tækifærið til að halda heimaleiki okkar á þessum sérstaka velli. Stamford Bridge er einn frægasti leikvangur í fótboltaheiminum, með ótrúlega sögu og andrúmsloft," segir í tilkynningu Shaktar.
Það hentar vel fyrir Shaktar að spila á Brúnni á komandi tímabili þar sem Chelsea er ekki í neinni Evrópukeppni og leikjaálagið því ekki mikið.

Undandarin ár hefur Shaktar spilað heimaleiki sína í Evrópukeppnum í Þýskalandi og Póllandi.
Shakhtar hefur ekki getað notað Donbas Arena sinn síðan Rússar réðust inn í Donetsk árið 2014. Lið hefur spilað deildarleiki í Kænugarði og Lviv.