Fotbolti.net
21.08.26 - 15:58
Kári Snorrason

Myndband: Eiður stýrði sinni fyrstu æfingu hjá KA

Frá æfingu liðsins í dag.

Frá æfingu liðsins í dag.

Canon

Mynd: KA

Eiður Smári Guðjohnsen stýrði sinni fyrstu æfingu sem þjálfari KA í dag. Hann var tilkynntur sem nýr þjálfari liðsins á miðvikudag og flaug hann norður í gær.

Hann mun koma til með að vera aðalþjálfari liðsins ásamt Hallgrími Jónassyni, sem hefur stýrt liðinu síðustu fjögur ár.

Eiður hefur ekkert komið að þjálfun undanfarin fjögur ár, frá því að hann var með FH í seinna skiptið. Hann skrifaði undir samning út tímabilið við KA.

Í færslu sem KA birti á samfélagsmiðlum sínum má sjá myndskeið af Eiði fara yfir taktísk atriði með hópnum og má sjá það hér að neðan.
Eiður kemur inn sem aðalþjálfari með Hadda - „Svo er staðan tekin í haust“
TENGT EFNI

Eiður kemur inn sem aðalþjálfari með Hadda - „Svo er staðan tekin í haust“


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.