Partizan gerði 2-2 jafntefli við AZ er liðin mættust í Belgrad, höfuðborg Serbíu, í Evrópudeildinni í gærkvöldi. Albert Guðmundsson var ónotaður varamaður hjá AZ.
Áhorfendur leiksins vöktu athygli því enginn þeirra var yfir 14 ára aldri vegna refsingar frá evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA.
Knattspyrnusambandið skildaði Partizan til að spila leikinn fyrir luktum dyrum vegna óláta stuðningsmanna. Félagið fékk þó leyfi til að bjóða 20 þúsund börnum í knattspyrnuskólum fyrir 14 ára og yngri á leikinn.
Þetta er í annað sinn sem félagið gerir þetta í haust. Fyrra skiptið var 2-1 sigur gegn Molde í undankeppninni í lok ágúst.
CONFIRMED: Partizan's first Europa League home game against @AZAlkmaar on Sept 19 will be played behind closed doors, after the club lost an appeal with UEFA.
— Partizan Belgrade 🇬🇧 (@FKPartizanEN) September 10, 2019
Like the Molde game, students up to 14 years old from football schools can attend by getting in contact with the club. pic.twitter.com/bVNxdH3ABP
— When Sunday Comes (@WSCsupporters) September 19, 2019
Athugasemdir