Lokaumferð Inkasso-deildarinnar hefst núnan klukkan 14:00 en spennan í fallbaráttunni er mikil, fimm lið eru í lífsbaráttu.
Þróttur er í fallsæti og mætir Aftureldingu í innbyrðis fallslag en hér er nánari útskýring á lokaumferðinni.
Þróttur er í fallsæti og mætir Aftureldingu í innbyrðis fallslag en hér er nánari útskýring á lokaumferðinni.
Bjarnólfur Lárusson er aðstoðarþjálfari á bekk Þróttar en hann kom inn í þjálfarateymið í vikunni.
Ljóst er að Þróttur mun falla ef liðið tapar leiknum í dag.
Þórhallur Siggeirsson, þjálfari Þróttar, er á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari í meistaraflokki og var Bjarnólfur fenginn til að aðstoða hann í þessum mikilvæga leik.
Bjarnólfur er í barna- og unglingaráði Þróttar en hann er fyrrum þjálfari Víkings og þá lék hann fjölmarga leiki með ÍBV og KR á leikmannaferli sínum auk þess að leika í neðri deildum Englands.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir