Fotbolti.net
21.09.19 - 17:35
Ívan Guðjón Baldursson

Wilder: Fáránlegur leikur - Við vorum heppnir

Wilder: Fáránlegur leikur - Við vorum heppnir
Canon

Mynd: Getty Images

Chris Wilder, stjóri Sheffield United, var himinlifandi með stigin þrjú sem hans menn unnu inn í dag á erfiðum útivelli.
Nýliðarnir heimsóttu Everton og tókst að sigra leikinn 0-2 þrátt fyrir að eiga aðeins eitt skot sem hæfði markrammann í öllum leiknum.

„Við erum ánægðir með stigin. Þetta var fáránlegur leikur, mögulega okkar versta frammistaða á tímabilinu en samt förum við heim með þrjú stig," sagði Wilder.

„Við vorum mjög góðir án boltans en gátum ekkert þegar við fengum hann. Þeir voru mikið að gefa fyrirgjafir en við vörðumst vel. Þeir hafa fengið milljón hornspyrnur í leiknum.

„Við vorum heppnir í dag en við vorum óheppnir í síðustu viku þannig þetta jafnast út. Fólk segir að maður þurfi að vera góður á heimavelli til að lifa af í úrvalsdeildinni en við erum að snúa þessari hugsun við."


Everton var í sókn allan leikinn en átti erfitt með að finna glufur á vörn gestanna. Sheffield er komið upp að hlið Tottenham á stöðutöflunni, með 8 stig eftir 6 umferðir. Everton situr eftir með 7 stig.

Lærisveinar Wilder eru nú búnir að vinna einn og gera tvö jafntefli í þremur útileikjum í úrvalsdeildinni. Jafnteflin voru gegn Bournemouth og Chelsea.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.