Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mán 21. september 2020 18:21
Baldvin Már Borgarsson
Byrjunarlið Breiðabliks og KR: Óskar Örn slær met
Óskar Örn Hauksson er að slá met yfir flesta spilaða leiki í efstu deild karla.
Óskar Örn Hauksson er að slá met yfir flesta spilaða leiki í efstu deild karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarliðin úr stórleik kvöldsins í Pepsi Max deild karla eru klár og má sjá þau hér fyrir neðan.

Breiðablik og KR mætast á Kópavogsvelli kl 19:15 en þau mættust einnig fyrir 11 dögum síðan á sama stað í Mjólkurbikarnum, þar hafði KR betur í markaleik og komst áfram.

Hjá Breiðablik tekur Oliver Sigurjónsson út leikbann vegna uppsafnaðra gulra spjalda, Róbert Orri Þorkelsson kemur inn í lið Blika.

Arnþór Ingi Kristinsson er í leikbanni hjá KR eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið gegn Stjörnunni í síðasta leik, Óskar Örn kemur inn í lið KR frá tapinu gegn Stjörnunni en hann er að slá met yfir flesta spilaða leiki í efstu deild karla.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.

Byrjunarlið Breiðabliks:
12. Anton Ari Einarsson (m)
5. Elfar Freyr Helgason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen
10. Brynjólfur Willumsson
11. Gísli Eyjólfsson
16. Róbert Orri Þorkelsson
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson
30. Andri Rafn Yeoman

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
16. Pablo Punyed
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson
25. Finnur Tómas Pálmason
29. Stefán Árni Geirsson


Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner