Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. október 2019 10:49
Magnús Már Einarsson
Skoða Pogba í dag - Var með hækju á Old Trafford
Mynd: Getty Images
Sjúkraþjálfarar Manchester United ætla að skoða miðjumanninn Paul Pogba í dag og reyna að fá úr því skorið hversu lengi hann verður frá keppni til viðbótar.

Pogba hefur verið frá keppni síðan um mánaðarmótin vegna meiðsla en í landsleikjahléinu fór hann til Dubai í endurhæfingu.

Pogba sást með hækju á Old Trafford í gær þar sem hann fylgdist með liðsfélögum sínum gegn Liverpool.

„Við ætlum að setja Paul í skoðanir á morgun (í dag) og sjá hvernig hann er og hversu langt er í að hann komi aftur," sagði Solskjær eftir leikinn í gær.

Solskjær sagðist einnig bjartsýnn á að Luke Shaw og Jesse Lingard snúi fljótlega aftur eftir meiðsli aftan í læri.
Athugasemdir
banner
banner