Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segist ánægður með leikmannahópinn og ekki stefna á að kaupa nýja leikmenn til félagsins.
Mourinho borgaði tæplega 400 milljónir punda fyrir ellefu nýja leikmenn á tveimur árum hjá Manchester United.
Miðað við orð hans á fréttamannafundi í dag þá er Tottenham ekki að fara að versla í janúar.

„Besta gjöfin fyrir mig er sú að ég þarf ekki leikmenn. Ég er ánægður með þá sem ég hef," sagði Mourinho.
„Ég þarf bara meiri tíma með þeim. Ég þekki þá vel eftir að hafa spilað gegn þeim en þú þekkir þá aldrei nægilega vel."
Athugasemdir