Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 22. janúar 2020 23:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ben Mee: Fótbolti er fyndinn leikur
Mee og Wood gegn Leicester.
Mee og Wood gegn Leicester.
Mynd: Getty Images
Burnley sigraði Manchester United á Old Trafford í kvöld. Burnley skoraði tvö mörk gegn engu frá heimamönnum.

Chris Wood og Jay Rodriguez sáu um markaskorunina en Burnley stóð sig vel varnarlega og hélt United í skefjum.

Ben Mee, fyrirliði Burnley liðsins, var í viðtali við BT Sport eftir leikinn í kvöld: „Það er gott að klára leikinn og halda hreinu. Þetta er fyndinn leikur. Við töpuðum fjórum deildarleikjum í röð og núna vinnum við Leicester og Manchester United í sömu vikunni," sagði Mee við BT Sport.

Burnley sigraði Leicester á sunnudag, 2-1, og nú United. Tvö lið í Meistaradeildarbaráttu sem Burnley hefur klárað í sömu vikunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner