Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 22. janúar 2023 23:04
Brynjar Ingi Erluson
Danjuma kláraði læknisskoðun í gær - Kynntur á morgun
Mynd: Getty Images
Arnaut Danjuma verður kynntur sem nýr leikmaður Everton á morgun en þetta segir ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano.

Danjuma, sem er 25 ára gamall, er að ganga í raðir Everton á láni frá Villarreal.

Everton fær ekki kauprétt á leikmanninum en hollenska leikmanninum er ætlað að hjálpa Everton í fallbaráttunni.

Danjuma stóðst læknisskoðun hjá enska félaginu í gær og er nú verið að ganga frá helstu smáatriðum samningsins áður en hann verður kynntur á morgun.

Hann verður fyrsti leikmaðurinn sem Everton fær til félagsins í þessum glugga.
Athugasemdir
banner
banner