Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. mars 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alex Neil yfirgefur Preston (Staðfest)
Alex Neil.
Alex Neil.
Mynd: Getty Images
Alex Neil er ekki lengur knattspyrnustjóri Preston í Championship-deildinni en frá þessu var greint í gær.

Síðasti leikur hans við stjórnvölinn hjá félaginu var 1-0 tap gegn Luton á heimavelli.

Preston hefur tapað þremur leikjum í röð og aðeins unnið þrjá leiki af síðustu 17 í öllum keppnum.

Preston er í 16. sæti Championship-deildarinnar, níu stigum frá fallsvæðinu.

Hinn 39 ára gamli Neil hefur stýrt Preston í tæp fjögur ár en hann tók við liðinu sumarið 2017. Undir hans stjórn hefur Preston endað í sjöunda sæti, 14. sæti og níunda sæti Championship-deildarinnar.

Neil hefur einnig stýrt Hamilton í Skotlandi og Norwich, núverandi toppliði Championship, á sínum stjóraferli.
Athugasemdir
banner
banner