| mið 22.apr 2026 13:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Flutti í 4. flokki frá foreldrunum til að elta drauminn
Gabríel Snær Gunnarsson var í síðustu viku kynntur sem nýr leikmaður sænska félagsins Elfsborg. Forráðamenn félagsins eru í skýjunum með að hafa landað leikmanninum. Sænska félagið kaupir hann af ÍA en Gabríel fer þó ekki til Borås fyrr en 1. júlí í sumar.
Gabríel Snær er mjög efnilegur sóknarmaður, fæddur 2008 og á að baki 14 leiki fyrir unglingalandsliðin. Hann skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark í lokaumferð Bestu deildarinnar í fyrra og var iðinn við kolann með ÍA í vetur. Fótbolti.net ræddi við kappann um skiptin.
„Tilfinningin að vera búinn að skrifa undri hjá Elfsborg er bara mjög góð. Ég er mjög ánægður með þetta og er mjög spenntur fyrir þessu verkefni," segir Gabríel.
„Ástæðan fyrir því að ég skrifa undir hjá Eflsborg er sú að mér finnst Elfsborg vera rétt skref fyrir mig akkúrat núna. Ég get séð mig verða að betri leikmanni hjá þessu félagi. Þetta er góður og mjög faglegur klúbbur sem hefur lengi verið í efstu deild og hafa margoft gert unga leikmenn betri og selt þá svo út tilbúna í stærri deildir Evrópu."
Fann hversu mikla trú félagið hafði á sér
Gabríel fór á reynslu til Elfsborg í desember og leið strax mjög vel.
„Mér fannst þetta vera mjög professional klúbbur og fann að það væri bara gott fólk sem stæði að þessu félagi. Ég fór fyrst á æfingu með U19 liðinu en síðan var ég bara með aðalliðinu og fannst mér þeir taka mér mjög vel. Þeir heyrðu svo aftur í mér eftir að ég kom aftur heim og í fyrstu var ég aðeins efins en þeir sýndu að þeir höfðu mika trú á mér og sæju mig bara sem aðalliðs leikmann sem mér fannst mjög aðlaðandi. Þannig eftir að ég fann fyrir því hversu mikla trú þeir höfðu á mér vissi ég að ég myndi einn daginn skrifa undir."
Hvað þarf að hafa í huga þegar 18 ára leikmaður fer frá Akranesi til Borås?
„Að félagið sé rétt fyrir þig. Að það sé gott fólk sem stendur að þessu og að þú getur vaxið sem leikmaður og manneskja innan félagsins. Þú þarft að finna rétta íbúð í réttu hverfi. Læra að elda nokkra góða rétti og svo bara að standa með sjálfum þér og reyna að vera sjálfstæður í þessu auk þess að þiggja hjálp frá réttu fólki þegar þú þarft á henni að halda."
Gabríel og fjölskyldan hafa skoðað nokkrar íbúðir á svæðinu og er klúbburinn að hjálpa til við að fínna réttu íbúðina fyrir leikmanninn. Hann ætlar svo að vera í fjarnámi frá Íslandi.
Elfsborg vildi að hann myndi frekar spila með ÍA
Þú ferð í sumar, af hverju ferðu ekki strax?
„Vegna þess að Svíþjóð komst á HM þá verður sex vikna hlé á sænsku deildinni þannig að þeir vildu frekar að ég væri á Íslandi að spila og æfa til þess að koma klár í slaginn fyrir seinni hluta tímabils."
Gabríel segir að það hafi verið áhugi frá öðrum félögum í vetur en ekkert annað hafi komið upp sem heillaði nægilega mikið svo hann væri tilbúinn að stökkva frá ÍA á þeim tímapunkti.
Alltaf verið markmiðið og draumurinn
Hvenær hugsaðir þú að þú gætir orðið atvinnumaður í fótbolta?
„Það hefur alltaf verið markmiðið mitt að verða atvinnumaður. Manni dreymdi um þetta þegar maður var lítill strákur í Eyjum. En það var samt kannski ekki fyrr en þegar ég fór að brjótast meira og meira inn í meistaraflokk ÍA að ég fattaði að það væri í alvöru séns á því að ég gæti orðið atvinnumaður."
Flutti á Akranes í 4. flokki
Gabríel tók þá ákvörðun að fara frá Vestmannaeyjum í fjórða flokki og flutti á Akranes. Af hverju gerði Gabríel það?
„Vestmannaeyjar er frábær staður og mér hefur alltaf liðið vel þar, en bara því miður hefur yngri flokka starf ÍBV ekki verið nógu gott síðustu ár og ég einfaldlega fann ekki fyrir því að ég myndi bæta mig eitthvað þar. Ég vildi fá að prófa eitthvað nýtt og spila gegn betri leikmönnum. Þannig ég flutti upp á Skaga um sumarið og fékk herbergi hjá vinafólki til að gista og vera."
„Helsta ástæðan fyrir valinu að fara frekar á Akranes heldur en í borgina er að ég vildi frekar halda í svona smábæjar fýlinginn þar sem krakkar eru að gera eitthvað saman eftir skóla og eftir æfingar, eins og að fara í fótbolta eða körfu saman, í staðinn fyrir að fara bara heim með strætó. Mér fannst að það myndi hjálpa mér mun meira að koma mér inn í samfélagið og að kynnast fullt af nýju fólki."
Fjölskyldan, móðir, faðir og systkini Gabríels, fluttu svo á Akranes í kjölfarið og hafa búið þar síðustu árin.
Verður ævinlega þakklátur
Gabríel flutti til þeirra Hjálms Dórs Hjálmssonar og Vigdísar Elfu Jónsdóttur á Akranesi. . Hjálmur er fyrrum liðsfélagi föður Gabríels, Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, í yngri landsliðum Íslands. Þeir Gunnar Heiðar og Hjálmur Dór urðu góðir félagar og héldu vinasambandinu.
Hvernig var að yfirgefa foreldrana 13-14 ára og flytja á Akranes?
„Hjálmur og Vigdís eru eðal fólk og er ég ævinlega þakklátur þeim og þeirra fjölskyldu fyrir að hafa tekið svona vel á móti mér. Mér leið strax vel með þeim og þau hjálpuðu mér mikið að komast inn í samfélagið. Þetta var alveg fljótt að venjast svona miðað við en þótt að maður hefði alltaf frekar viljað hafa foreldrana sína með sér í þessu og stundum smá heimþrá, þá voru Hjálmur og Vigdís frábær. Það er alltaf erfitt að flytja á nýjan stað og þá sérstaklega einn og svona ungur en þá hugsaði maður bara að þetta væri eitthvað sem ég þarf að gera til að taka næsta skref."
Reynsla sem gæti hjálpað
Gabríel telur að þetta skref gæti hjálpað honum að aðlagast nýju umhverfi þegar hann flytur erlendis.
„Já, ég held að þetta gæti alveg hjálpað mér að hafa áður flutt að heiman. Þrátt fyrir að fjölskyldan sem ég flutti til tók mjög vel á móti mér og gerði margt fyrir mig. Þá held ég samt að þetta hafi bara hjálpað mér að verða tilbúinn fyrir að búa einn."
Tveir aðrir Íslendingar hjá Elfsborg
Hjá Elfsborg hittir Gabríel fyrir þá Ara Sigurpálsson og Júlíus Magnússon sem eru leikmenn félagsins.
„Ég spjallaði aðeins við þá þegar ég var þarna úti í desember og þeir höfðu bara góða hluti að segja um félagið."
Er teknískari en væri til í staðsetningar föður síns
Gabríel var svo spurður út í samanburðinn við föður sinn, fyrrum atvinnu- og landsliðsmanninn Gunnar Heiðar.
„Það eru klárlega einhver líkindi með okkar leikstíl. Erum svipað byggðir og með eins hugmyndir um fótbolta. Hann var mikill markaskorari sem fann sér svæði inn í teig og potaði honum inn. Ég er kannski meira að fá hann í lappir og búa eitthvað til fyrir mig og aðra, kannski aðeins teknískari. Staðsetningarnar hans inn í teig er klárlega eitthvað sem ég myndi vilja taka meira inn í minn leik frá honum en hann hefur hjálpað mér gríðarlega mikið með allt sem tengist fótbolta. Hann er með mikla reynslu frá því að hann var að spila og getur deilt hans reynslu með mér bæði innan vallar og utan vallar."
Talið þið um eitthvað annað en fótbolta?
„Við erum miklir félagar og deilum fullt af áhugamálum, þannig að við getum talað um nánast allt saman, ekki einungis fótbolta."
Stór partur af því að draumurinn sé að verða að veruleika
Að lokum, er eitthvað sem þú vilt bæta við?
„Bara enn og aftur vil ég sýna þakklæti mitt til Hjálms og Vigdísar, þau eru stór partur í því að draumurinn sé að verða að veruleika. Einnig fólkið sem er í kringum ÍA, yngri flokka þjálfarar og aðrir aðstandendur sem hafa hjálpað mér að vaxa sem leikmaður og manneskja."
„Einnig hefur fjölskyldan mín alltaf stutt við mig, mamma og pabbi hafa kennt mér helling, og þau munu alltaf standa með mér í gegnum allt. Og svo vinir mínir á Skaganum sem voru fljótir að hleypa mér inn í vinahópa og tóku mjög vel á móti mér. Það er fullt af fólki sem ég er ekki að nefna hér sem hafa hjálpað mér mikið og vita þau það flest sjálf og verð ég alltaf þakklátur þeim," segir Gabríel.