Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
„Af því enginn þekkir nafnið þá veljið þið hann ekki mann leiksins”
Viktor Örn: Klaufalegt rautt spjald en enginn ásetningur
Arnar fer yfir valið - „Ekki á hverjum degi sem maður mæti Messi og félögum“
Ísland í dag - Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins hefjast
Gylfi sáttur með sigurinn: „Þessi seinni hálfleikur var mjög langur"
Jói hrósaði nýliðunum: Þær tóku fyrri hálfleikinn bara í nefið
Einar Guðna: Vindurinn tók boltann bara til baka
Anton Ingi pirraður: Við verðum að hafa kassann út í 90 mínútur
   mið 22. apríl 2026 22:10
Elvar Geir Magnússon
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík og Breiðablik gerðu jafntefli í 3. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Leikurinn var nánast tíðindalaus og markalaust í fyrsta grasleik Bestu deildarinnar þetta tímabilið.

Eftir að hafa tapað fyrstu tveimur deildarleikjum sínum er Keflavík komið á blað. Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur ræddi við Fótbolta.net og var beðinn um að leggja sitt mat á leikinn.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  0 Breiðablik

„Mér fannst við fínir, mér fannst við spila vel. Við gerðum það sem við lögðum upp með. Völlurinn er vissulega laus í sér og við töluðum um það að koma boltanum inn í teig hjá þeim og vinna fyrsta og annan bolta. Mér fannst við ofan á í fyrri hálfleik en svo jafnaðist þetta út," segir Haraldur.

Vallaraðstæður höfðu sitt að segja, völlurinn var erfiður og það bitnaði klárlega mikið á gæðum leiksins. Hversu mikil áhrif höfðu vallaraðstæður?

„Það hefur bara hellings áhrif. Apríl á grasi og völlurinn laus í sér. Mér fannst við spila vel á aðstæðurnar en það vantaði herslumun að skapa betri færi."
Slapp
banner
banner
banner