Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 23:44
Elvar Geir Magnússon
„Til skammar fyrir Bestu deildina“
Frá Akraneshöllinni.
Frá Akraneshöllinni.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
HS Orkuvöllurinn.
HS Orkuvöllurinn.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Þriðja umferð Bestu deildarinnar hófst með tveimur jafnteflisleikjum sem voru spilaðir við ólíkar en umdeildar aðstæður.

„Það er til skammar fyrir Bestu deildina að bjóða upp á mjög lélegan grasvöll í Keflavík og Akraneshöllina samdægurs. Ömurleg auglýsing fyrir deildina sem fælir frá áhorfendur," skrifar Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is og þjálfari Dalvíkur/Reynis, á X samfélagsmiðlinum.

Leikur ÍA og KA var færður inn í Akraneshöllina þar sem aðalvöllur Skagamanna er ekki tilbúinn. Það hefur verið gagnrýnt talsvert undanfarin ár að höllin sé leyfð sem varavöllur.

„Að þessi leikur skuli vera í Akraneshöllinni er fáránlegt. Verðum að fara setja harðar reglur á hvað er í lagi að nota sem varavelli í Bestu deildinni," skrifar Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net en leikurinn endaði 1-1.

„Sérkennilegt að vera hér innanhúss og fimm sinnum kom það fyrir að boltanum var sparkað upp í loft, eða öllu heldur upp undir þakið, og til þurfti dómarakast," segir íþróttafréttamaðurinn Valur Páll Eiríksson í umfjöllun á Vísi.

Fyrsti grasleikur Bestu deildarinnar þetta tímabilið var markalaus og gæðalítill leikur Keflavíkur og Breiðabliks sem spilaður var við erfiðar aðstæður á þungum velli.

Hér má sjá samantekt á umræðu á X samfélagsmiðlinum:







Nánar um leikina:
Slapp
banner
banner