Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
   fös 22. maí 2026 21:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Markaveisla í fyrsta tapi KR - Víkingur með stórsigur
Fram vann tíu Stjörnumenn
Kristófer Ingi Kristinsson
Kristófer Ingi Kristinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már Ómarsson
Elías Már Ómarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Breki Kárason
Sigurður Breki Kárason
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það var mikil markaveisla þegar Breiðablik fékk KR í heimsókn í 8. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Veislan hófst strax á 2. mínútu þegar Viktor Karl Einarsson lagði boltann á Kristófer Inga Kristinsson sem skoraði af öryggi.

Anton Logi Lúðvíksson bætti öðru markinu við eftir um stundafjórðung. Strax í kjölfarið náði KR að minnka muninn þegar hinn 16 ára gamli Sigurður Breki Kárason fann lausan boltann inn á teignum og skoraði af stuttu færi.

Staðan var orðin 3-1 eftir tæplega hálftíma leik þegar Ágúst Orri Þorsteinsson skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Aroni Bjarnasyni. Stuttu síðar skoraði Davíð Ingvarsson fjórða mark Breiðabliks.

Sigurður Breki refsaði Antoni Ara undir lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði eftir sendingu frá markverði Blika.

Blikar gerðu út um leikinn snemma í seinni hálfleik. Ívar Örn Árnason skoraði eftir frábæra sendingu frá Antoni Loga og Kristófer innsiglaði sigur liðsns, aftur eftir undirbúning Antons Loga.

KR-ingar fengu vítaspyrnu undir lokin og Amin Cosic skoraði sárabótamark.

Víkigur fékk FH í heimsókn. Gunnar Vatnhamar kom Víkingi yfir eftir fyrirgjöf frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Gylfi bætti síðan öðru marki við eftir góðan undibúning hjá Daníel Hafsteinssyni.

FH varð síðan fyrir enn meira áfalli strax í upphafi seinni hálfleiksins þegar Sverrir Páll Hjaltested braut illa á Elíasi Má Ómarssyni og fékk rautt spjald. Stuttu síðar bætti Elías Már við þriðja marki Víkinga.

Daníel skoraði síðan fjórða mark Víkings og Elías Már innsiglaði sigurinn með marki undir lokin.

Stjarnan og Fram áttust þá við í Garðabænum. Framarar byrjuðu leikinn betur en Stjarnan fékk einnig fín færi til að skora en staðan var markalaus í hálfleik.

Róbert Hauksson kom Fram yfir eftir frábæran undirbúning hjá Frey Sigurðssyni.

Stjarnan var síðan manni færri síðustu mínúturnar þegar Bjarki Hauksson braut á Atla Þór Jónassyni sem var að komast upp í skyndisókn.

Stjarnan var nálægt því að jafna metin undir lokin en skotið beint á Viktor Frey Sigurðsson og sigur Fram staðreynd.

Breiðablik 6 - 3 KR
1-0 Kristófer Ingi Kristinsson ('2 )
2-0 Anton Logi Lúðvíksson ('14 )
2-1 Sigurður Breki Kárason ('16 )
3-1 Ágúst Orri Þorsteinsson ('27 )
4-1 Davíð Ingvarsson ('33 )
4-2 Sigurður Breki Kárason ('42 )
5-2 Ívar Örn Árnason ('48 )
6-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('54 )
6-3 Amin Cosic ('88 , víti)
Lestu um leikinn

Víkingur R. 5 - 0 FH
1-0 Gunnar Vatnhamar ('13 )
2-0 Gylfi Þór Sigurðsson ('38 )
3-0 Elías Már Ómarsson ('52 )
4-0 Daníel Hafsteinsson ('80 )
5-0 Elías Már Ómarsson ('87 )
Rautt spjald: Sverrir Páll Hjaltested, FH ('47) Lestu um leikinn

Stjarnan 0 - 1 Fram
0-1 Róbert Hauksson ('71 )
Rautt spjald: Bjarki Hauksson, Stjarnan ('87) Lestu um leikinn
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 8 7 1 0 26 - 4 +22 22
2.    KR 7 6 1 0 27 - 13 +14 19
3.    Fram 8 5 2 1 21 - 13 +8 17
4.    Valur 8 5 0 3 17 - 14 +3 15
5.    Breiðablik 7 3 3 1 13 - 8 +5 12
6.    Keflavík 8 3 2 3 11 - 12 -1 11
7.    KA 8 3 1 4 9 - 10 -1 10
8.    ÍA 8 2 3 3 11 - 16 -5 9
9.    Stjarnan 8 2 1 5 14 - 18 -4 7
10.    Þór 8 2 0 6 6 - 20 -14 6
11.    FH 8 0 2 6 12 - 25 -13 2
12.    ÍBV 8 0 2 6 8 - 22 -14 2
Slapp