Fotbolti.net
22.05.26 - 08:13
Elvar Geir Magnússon

Noregskonungur tilkynnti HM hóp þjóðarinnar

Haraldur Noregskonungur.

Haraldur Noregskonungur.

Canon

Mynd: X

Búið er að opinbera norska landsliðshópinn fyrir HM en það var gert á skemmtilegan hátt, með myndbandsávarpi frá Haraldi Noregskonungi. Myndbandið má sjá hér að neðan.

Martin Ödegaard, fyrirliði Englandsmeistara Arsenal, verður fyrirliði norska liðsins á mótinu. Erling Haaland markahrókur Manchester City er að sjálfsögðu í hópnum.

Einn leikmaður í hópnum hefur ekki leikið landsleik en það er Sander Tangvik hjá Hamborg. Mathias Dyngeland markvörður Brann er meiddur og því ekki í hópnum.

Noregur er með Frakklandi, Senegal og Írak í riðli á HM.
Markverðir: Örjan Haskjold Nyland (Sevilla), Egil Selvik (Watford), Sander Tangvik (Hamburger SV).

Varnarmenn: Julian Ryerson (Borussia Dortmund), Marcus Holmgren Pedersen (Torino), David Möller Wolfe (Wolverhampton), Fredrik Björkan (Bodö/Glimt), Kristoffer Ajer (Brentford), Torbjörn Heggem (Bologna), Leo Skiri Ostigard (Genoa), Sondre Langas (Derby County), Henrik Falchener (Viking).

Miðjumenn: Martin Ödegaard (Arsenal), Sander Berge (Fulham), Fredrik Aursnes (Benfica), Patrick Berg (Bodö/Glimt), Kristian Thorstvedt (Sassuolo), Morten Thorsby (Cremonese), Thelo Aasgaard (Rangers).

Sóknarmenn: Erling Haaland (Manchester City), Alexander Sörloth (Atletico Madrid), Jörgen Strand Larsen (Crystal Palace), Antonio Nusa (RB Leipzig), Oscar Bobb (Fulham), Andreas Schjelderup (Benfica), Jens Petter Hauge (Bodo/Glimt).

Noregskonungur tilkynnti HM hóp þjóðarinnar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.