Graham Potter landsliðsþjálfari Svíþjóðar opinberaði HM hóp Svía í síðustu viku. Þar má finna Viktor Gyökeres sóknarmann Englandsmeistara Arsenal og Alexander Isak sóknarmann Liverpool.
Dejan Kulusevski leikmaður Tottenham er ekki í hópnum en hann hefur ekki spilað á tímabilinu vegna hnémeiðsla.
Isak hefur einnig verið mikið á meiðslalistanum á tímabilinu og ekki byrjað marga leiki.
„Okkar áskorun er að fá Alex til að sýna sínar bestu hliðar á HM. Ef hann nær að koma sér í gott stand þá er hann heimsklassa leikmaður," segir Potter.
Svíar komust á HM í gegnum umspil og eru með Túnis, Hollandi og Japan í riðli.

Sænski hópurinn:
Markverðir: Viktor Johansson (Stoke City), Kristoffer Nordfeldt (AIK), Jacob Widell Zetterstrom (Derby County).
Varnarmenn: Hjalmar Ekdal (Burnley), Gabriel Gudmundsson (Leeds United), Isak Hien (Atalanta), Emil Holm (Juventus), Gustaf Lagerbielke (Braga), Victor Lindelöf (Aston Villa), Erik Smith (St. Pauli), Carl Starfelt (Celta Vigo), Elliot Stroud (Mjallby), Daniel Svensson (Borussia Dortmund).
Miðjumenn: Taha Ali (Malmö), Yasin Ayari (Brighton), Lucas Bergvall (Tottenham), Jesper Karlstrom (Udinese), Ken Sema (Pafos), Mattias Svanberg (Wolfsburg), Besfort Zeneli (Union St-Gilloise).
Sóknarmenn: Alexander Bernhardsson (Holstein Kiel), Anthony Elanga (Newcastle United), Viktor Gyökeres (Arsenal), Alexander Isak (Liverpool), Gustaf Nilsson (Club Brugge), Benjamin Nygren (Celtic).
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!