Brottreksturinn kom flatt upp á Frey - „Auðvelt að vera með þær hugsanir“

Látinn fara frá Brann í upphafi mánaðar.

Mynd: EPA

Komust í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar.

Mynd: EPA

Tekinn við Rosenborg.

Mynd: Rosenborg

Liðið hafði tapað þremur leikjum í röð og sat í 11. sæti deildarinnar þegar Freyr var látinn taka poka sinn.

Freyr Alexanderson var í síðustu viku kynntur sem nýr stjóri norska stórliðsins Rosenborg. Freyr var látinn fara frá Brann í upphafi mánaðar en hann hafði stýrt liðinu í um eitt og hálft ár.
Hann kom liðinu í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á sínu fyrsta tímabili, endaði með liðið í 4. sæti norsku deildarinnar og kom því í vor í úrslitaleik bikarsins. Gengi liðsins hafði verið öllu slakara á yfirstandandi tímabili en Brann var í 11. sæti norsku úrvalsdeildarinnar þegar Freyr var látinn fara.
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var slegið á þráðinn til Freys og ræddi hann um tímann í Bergen.

Tækifærin koma
„Fyrst og fremst var þetta frábær tími. Geggjað ár í fyrra, þar sem við náðum frábærum árangri í Evrópu og vorum í topp fjórum í deildinni. Síðan náðum við að selja nokkra leikmenn og eignast svolítið af peningum í Bergen. Árið í ár var svolítið erfitt út af mörgum ástæðum. Það fjaraði undan því og þeir vildu losa sig við mig, þeir gerðu það og þá koma ný tækifæri í lífinu,“ sagði Freyr.
Kærleikur stuðningsmanna mikilvægur
Stuðningsmenn Brann voru ósáttir með ákvörðun stjórnar um að láta Frey fara og margir bentu á meiðsli lykilmanna. Freyr segir það hafa hjálpað að hafa verið með stuðningsmenn á sínu bandi.
„Það er kannski þess vegna hvers vegna ég get gengið stoltur frá mínum tíma í Brann. Ég átti í stórkostlegum samskiptum við leikmenn, starfsfólk og ég fann mikinn kærleik og ást frá íbúum Bergen. Það hefur verið stórkostlegt að upplifa það og hjálpar manni að líða vel. Maður er einföld manneskja í grunninn, ef þú finnur fyrir ást og stuðningi að þá líður manni vel,“ sagði Freyr og hélt áfram.

„Svo er fótboltaheimurinn eins og hann er. Það eru einhverjir stjórnarmenn sem taka ákvarðanir sem þeir telja að séu bestar fyrir félagið. Sama hvort að það sé Víkingur Reykjavík, Manchester United eða Brann. Það þýðir ekki að taka því persónulega. Það væri erfiðara að stíga út ef þú fengir ekki ást og umhyggju frá leikmönnum og stuðningsmönnum.“
Kom brottreksturinn flatt upp á þig? „Já, þetta gerði það. Þetta kom mjög flatt upp á mig satt best að segja,“ sagði Freyr.
Auðvelt að vera með slíkar hugsanir
Tómas Þór spurði því næst hvort að það sitji í Frey að félagið hefði ekki átt að fjárfesta þeim peningi sem hafði komið inn í félagið. Liðið hafði náð langt í Evrópukeppni á síðasta tímabili og selt leikmenn á sama tíma, síðar meir var Freyr gagnrýndur fyrir slæman árangur.
Var það ósanngjarnt?
„Ég hef bara tekið þá ákvörðun að vera ekki með einhverjar ályktanir. Ég ætla ekki að vera velta mér upp úr þessu. Ef menn eru með klókan haus, eins og þú (Tómas Þór) ert með. Að þá er mjög auðvelt að hugsa þessar hugsanir. Ég tók þá ákvörðun snemma að hugsa að svona væri leikurinn og ég yrði að lifa með því. Ég ætlaði að taka næstu áskorun eins fljótt og kostur var á,“ sagði Freyr að lokum.

TENGT EFNI
Stuðningsmenn Brann hissa og ósáttir með ákvörðunina