Casemiro brast í grát þegar hann ræddi viðskilnaðinn við Man Utd

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Í heimildarþætti sem Manchester United lét framleiða brestur brasilíski miðjumaðurinn Casemiro í grát þegar hann ræðir um kveðjustundina.
„Ég verð að segja takk því þetta voru fjögur ótrúleg ár. Ég elska félagið, stuðningsmennina, fólkið. Þakka ykkur svo mikið fyrir," segir Casemiro.
Anna eiginkona hans er einnig til viðtals í þættinum og er líka tilfinninganæm þegar hún ræðir um viðskilnaðinn.
Casemiro, 34 ára, lék 111 leiki fyrir United, skoraði 15 mörk og vann FA-bikarinn og deildabikarinn. Hann fékk fallega kveðjustund og var hylltur af stuðningsmönnum eftri hans síðasta leik; 3-2 sigur gegn Nottingham Forest á Old Trafford í maí.
Það stefnir allt í að Casemiro semji við Inter Miami, lið David Beckham í bandarísku MLS-deildinni.

TENGT EFNI
Casemiro á leið til Inter Miami
Casemiro breaking down into tears when giving his final message to Manchester United.
— Kev ? (@UtdKev08) June 20, 2026
So beautiful yet heartbreaking. ???????? pic.twitter.com/dZihGCCpEH