Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 22. júlí 2021 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Vilhjálmur Alvar dæmir í Sambandsdeildinni í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir í kvöld viðureign Hibernian og Santa Coloma í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Liðin mætast í Edinborg í Skotlandi, heimavelli Hibernian, en gestirnir koma frá smáríki Andorru.

Dómarateymið er íslenskt í heild sinni. Gylfi Már Sigurðsson og Oddur Helgi Guðmundsson eru aðstoðardómarar. Fjórði dómari verður Ívar Orri Kristjánsson.

Leikurinn er liður í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar, en í henni leika einnig Breiðablik, Valur og FH. Íslensku liðin þrjú mæta öll til leiks í dag og kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner