Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. júlí 2022 23:04
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Sex marka jafntefli í toppslagnum - Augnablik vann Elliða
KFG gerði 3-3 jafntefli við Víði
KFG gerði 3-3 jafntefli við Víði
Mynd: KFG
Bjarni Þór Hafstein skoraði fyrir Augnablik
Bjarni Þór Hafstein skoraði fyrir Augnablik
Mynd: Augnablik
Víðir og KFG gerðu ótrúlegt sex marka jafntefli í toppslagnum í 3. deild karla í kvöld þar sem Jóhann Þór Arnarsson jafnaði metin fyrir Víði undir lok leiksins.

Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum á toppnum með 24 stig en leikurinn var fínasta skemmtun fyrir áhorfendur, þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum.

Birgir Ólafur Helgason kom KFG yfir strax á 5. mínútu áður en Andri Fannar Freysson jafnaði átta mínútum síðar. Henrik Máni B. Hilmarsson bætti við tveimur mörkum fyrir KFG á sex mínútna kafla en Jóhann Þór Arnarsson náði að minnka muninn fyrir Víði fjórtán mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks.

Hann var síðan aftur á ferðinni á 89. mínútu og tryggði Víði stig úr leiknum en þetta var 13. mark hans í sumar og er hann markahæstur í deildinni þegar þrettán leikir eru búnir af mótinu.

Liðin eru áfram jöfn að stigum á toppnum með 25 stig.

Augnablik lagði þá Elliða, 3-1. Brynjar Óli Bjarnason og Orri Fannar Björnsson skoruðu mörk Augnabliks í fyrri hálfleik áður en Bjarni Þór Hafstein gerði út um leikinn með þriðja markinu á 54. mínútu.

Pétur Óskarsson klóraði í bakkann fyrir Elliða tuttugu mínútum fyrir leikslok með marki úr vítaspyrnu en lengra komst Elliði ekki og lokatölur 3-1 fyrir heimamenn sem eru í 9. sæti með 16 stig en Elliði í 5. sæti með 18 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Augnablik 3 - 1 Elliði
1-0 Brynjar Óli Bjarnason ('31 )
2-0 Orri Fannar Björnsson ('44 )
3-0 Bjarni Þór Hafstein ('54 )
3-1 Pétur Óskarsson ('71 , Mark úr víti)

Víðir 3 - 3 KFG
0-1 Birgir Ólafur Helgason ('5 )
1-1 Andri Fannar Freysson ('13 )
1-2 Henrik Máni B. Hilmarsson ('21 )
1-3 Henrik Máni B. Hilmarsson ('27 )
2-3 Jóhann Þór Arnarsson ('31 )
3-3 Jóhann Þór Arnarsson ('89 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner