Fotbolti.net
22.08.26 - 11:49
Brynjar Ingi Erluson

Alvarez snýr aftur í hóp Atlético - „Styð hvorki móðganir né ofbeldi“

Julian Alvarez

Julian Alvarez

Canon

Mynd: EPA

Diego Simeone, þjálfari Atlético Madríd, hefur staðfest að Julian Alvarez verði í leikmannahópnum á morgun er liðið tekur á móti Villarreal í La Liga.
Alvarez var ekki í leikmannahópi Atlético Madríd gegn Malaga í fyrstu umferð deildarinnar. Hann hefur farið fram á að yfirgefa félagið og vill ganga til liðs við Barcelona.

Migue Gil Marin, framkvæmdastjóri Atlético, hefur tekið skýrt fram að félagið muni ekki selja Alvarez til Barcelona.

Atlético er hins vegar sagt tilbúið að leyfa honum að fara til Arsenal en Argentínumaðurinn hefur engan áhuga á þeim félagaskiptum.

Alvarez snýr aftur í leikmannahóp Atlético á morgun og Diego Simeone biðlar til stuðningsmanna um að sýna honum virðingu.

„Alvarez verður í hópnum á morgun. Hann er ótrúlega mikilvægur fyrir okkur og við þurfum á honum að halda til að ná markmiðum okkar.

„Ég mun hugsa vel um hann svo lengi sem hann er hér hjá liðinu.“

„Ég ber mikla virðingu fyrir stuðningsmönnum okkar og hef alltaf gert. Ég styð hins vegar hvorki móðganir né ofbeldi.“

„Það er rýnt í hvert einasta orð af fólki sem bíður eftir tækifæri til að skapa sundrungu og óvissu.“

„Það ríkir engin óvissa og Miguel tók það skýrt fram. Alvarez er leikmaður Atlético og við þurfum á honum að halda,“
sagði Simeone.
Diego Simeone, þjálfari Atlético

Diego Simeone, þjálfari Atlético

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.