Fotbolti.net
22.08.26 - 15:19
Brynjar Ingi Erluson

Barcola og Mbaye utan hóps annan leikinn í röð

Barcola og Mbaye utan hóps annan leikinn í röð
Canon

Mynd: EPA

Franski landsliðsmaðurinn Bradley Barcola er ekki í leikmannahópi Paris Saint-Germain sem mætir Rennes í frönsku deildinni á morgun.
Liverpool á í viðræðum við Paris Saint-Germain um kaup á Barcola og er sagt bjartsýnt á að geta landað honum áður en glugginn lokar.

Barcola var ekki í leikmannahópi PSG í Ofurbikar Frakklands og verður heldur ekki með á morgun.

Senegalinn Ibrahim Mbaye er einnig utan hóps en hann hefur sömuleiðis verið orðaður við Liverpool. Enska félagið er þó ekki tilbúið að greiða 60 milljóna punda verðmiðann.

Liverpool hefur þess í stað boðið tvisvar í Yankuba Minteh hjá Brighton en báðum tilboðum var hafnað. Enskir blaðamenn telja þó líklegt að félögin nái samkomulagi um hann áður en glugginn lokar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.