Fotbolti.net
22.08.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Býst við að halda Wharton: Þurfum tvo leikmenn

Býst við að halda Wharton: Þurfum tvo leikmenn
Canon

Mynd: Crystal Palace

Pierre Sage þjálfari Crystal Palace segir að félagið þurfi helst á einum til tveimur nýjum leikmönnum að halda fyrir gluggalok, en þeir verði að vera réttir leikmenn.
Axel Disasi er á leið til félagsins úr röðum Chelsea og á hann að fylla í skarðið fyrir Maxence Lacroix sem fór hina leiðina.

Ýmsir leikmenn félagsins hafa vakið áhuga stórliða en Sage telur þetta ekki vera réttu stundina til að selja. Palace hafnaði tilboði frá Galatasaray í Ismaïla Sarr á dögunum og neitaði svo fyrirspurn Manchester City um miðjumanninn Adam Wharton.

„Við þurfum helst einn eða tvo nýja leikmenn, en það er óþarfi að flýta sér. Við verðum að finna rétta leikmenn, það er mikilvægast. Það er tilgangslaust að ná í leikmann sem passar svo ekki við hópinn. Við þurfum miðvörð með reynslu úr úrvalsdeildinni og okkur vantar leiðtoga," sagði Sage, sem neitaði að tjá sig um Disasi.

„Félagið hefur selt mikilvæga leikmenn í fortíðinni en ég held ekki að þetta sé rétti tíminn til að gera það. Adam (Wharton) er leikmaður sem hefur hæfileika til að spila í hvaða félagsliði sem er í Evrópu, en ég held að hann hafi gott af því að taka eitt ár í viðbót með okkur. Við þurfum á honum að halda og þess vegna held ég að hann verði áfram. Við viljum líka halda Ismaïla Sarr, hann er mjög mikilvægur."

Sage var einnig spurður út í kantmanninn Romain Esse, sem er ekki partur af byrjunarliðsáformunum, og staðfesti að hann yrði líklegast lánaður út.

Palace heimsækir Everton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Má fara frá Palace - „Besta lausnin fyrir hann og okkur“
TENGT EFNI

Má fara frá Palace - „Besta lausnin fyrir hann og okkur“

Býst við að halda Wharton: Þurfum tvo leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Býst við að halda Wharton: Þurfum tvo leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.