Fotbolti.net
22.08.26 - 16:34
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Andri Lucas skoraði þriðja leikinn í röð - West Ham tapaði

Andri Lucas er sjóðandi heitur með Blackburn

Andri Lucas er sjóðandi heitur með Blackburn

Canon

Mynd: Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði mikilvægt mark fyrir Blackburn Rovers í 2-1 sigri liðsins á Middlesbrough í 2. umferð ensku B-deildarinnar í dag.
Middlesbrough komst yfir á 12. mínútu en snemma í síðari hálfleik jafnaði Andri Lucas Guðjohnsen með skalla sem fór af varnarmanni og í netið.

Þetta var þriðja mark Andra í þriðja leiknum í röð. Hann skoraði einnig gegn Burton í enska deildabikarnum og í fyrstu umferð B-deildarinnar.

Markið gaf Blackburn aukinn kraft og aðeins nokkrum mínútum síðar skoraði Todd Cantwell sigurmarkið. Blackburn er með fjögur stig eftir tvær umferðir en Middlesbrough þrjú.

West Ham hefur farið illa af stað en liðið tapaði 2-1 fyrir Charlton á heimavelli. Lloyd Jones skoraði sturlað bakfallsspyrnu mark fyrir Charlton áður en Tyreece Campbell gerði annað marki snemma í þeim síðari. Joel Piroe minnkaði muninn á 74. mínútu og þá fékk Taty Castellanos gullið tækifæri til að bjarga stigi fyrir Hamrana undir lokin en brást bogalistin á vítapunktinum. West Ham er því aðeins með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina en Charlton er með fullt hús stiga.

Wolves vann 3-1 sigur á Preston og Southampton lagði Stoke að velli með sömu markatölu.

Í C-deildinni kom Benoný Breki Andrésson inn af bekknum í síðari hálfleik er Stockport County tapaði fyrir Blackpool, 2-1. Stockport er með þrjú stig eftir tvær umferðir.

Blackburn 2 - 1 Middlesbrough
0-1 Jeremy Sarmiento ('12 )
1-1 Andri Gudjohnsen ('49 )
2-1 Todd Cantwell ('55 )

Derby County 2 - 2 Cardiff City
0-1 Cian Ashford ('19 )
1-1 Carlton Morris ('26 )
1-2 Yousef Salech ('39 )
2-2 Bobby Clark ('49 )

Preston NE 1 - 3 Wolves
0-1 Fer Lopez ('8 )
0-2 Adam Armstrong ('71 )
0-3 Fer Lopez ('82 )
1-3 Jordan Thompson ('90 )

QPR 0 - 0 Bolton

Southampton 3 - 1 Stoke City
1-0 Cyle Larin ('8 )
1-1 Ethan Galbraith ('26 )
2-1 Divin Mubama ('89 )
3-1 Ryan Manning ('90 , víti)
Rautt spjald: Svante Ingelsson, Stoke City ('90)

Swansea 0 - 0 Sheffield Utd

West Ham 1 - 2 Charlton Athletic
0-1 Lloyd Jones ('7 )
0-2 Tyreece Campbell ('56 )
1-2 Joel Piroe ('74 )
1-2 Taty Castellanos ('90 , Misnotað víti)

Wrexham 1 - 1 Watford
0-1 Luca Kjerrumgaard ('14 )
1-1 Danny Imray ('22 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Millwall2+56
1Cardiff City5+815
1Coventry46+5295
2Ipswich Town46+3384
2Charlton Athletic2+26
2Ipswich Town5+312
3Leeds5+511
3QPR2+24
4Wolves5+310
4Wolves2+24
5Bolton2+14
5Sheffield Utd5+19
6Nott. Forest509
6Hull City46+473
6Watford2+14
7Swansea2+14
7Preston NE5+18
8Blackburn2+14
8Hull City5+57
9West Brom1+13
9Middlesbrough5+17
10QPR507
10Middlesbrough203
11Reading507
11Portsmouth203
12Derby County5-27
12Cardiff City202
13Bristol City5+16
13Wrexham202
14Birmingham202
14Fulham5+16
15Barnsley506
15Sheffield Utd202
16Sheff Wed506
16Burnley101
17Millwall5+25
17West Ham2-11
18Aston Villa5-25
18Derby County2-11
19Sunderland5-35
19Bristol City2-21
20Birmingham5-34
20Preston NE2-30
21Stoke City2-30
21Burton5-54
22Oxford United46-1447
22Lincoln City2-30
22Norwich5-64
23Brentford5-42
23Leicester46-1046
23Norwich2-40
24Southampton2+1-1
24Bolton5-62
24Sheff Wed46-600
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.