22.08.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrsti sigurinn hjá Arnóri Gauta
Logi og Andri Fannar fögnuðu sigrum

Mynd: Slaven Belupo

Mynd: Slaven Belupo
Arnór Gauti Jónsson fagnaði sínum fyrsta sigri sem leikmaður Slaven Belupo í króatísku deildinni í dag.
Hann kom inn á undir lokin í 2-0 sigri á Gorcia. Þetta var fjórði leikurinn hans fyrir liðið. Slaven Belupo er í 8. sæti með þrjú stig eftir fjórar umferðir.

Andri Fannar Baldursson spilaði 67 mínútur í 1-0 sigri Kasimpasa gegn Corum í 2. umferð tyrkensku deildarinnar. Logi Tómasson spilaði allan leikinn í 2-0 sigri Samsunspor gegn Rizespor.
Samsunspor er í 2. sæti með fjögur stig og Kasimpasa er í 3. sæti einnig með fjögur stig.
Nökkvi Þeyr Þórisson spilaði 62 mínútur í 3-3 jafntefli Sparta Rotterdam gegn Utrecht í hollensku deildinni. Sparta er með fjögur stig eftir þrjár umferðir.
Bjarki Steinn Bjarkason spilaði 83 mínútur í 1-0 sigri Sudtirol gegn Entella í fyrstu umferð B-deildarinnar á Ítalíu.
Adam Ingi Benediktsson var í markinu hjá AB Kaupmannahöfn í 1-1 jafntefli gegn Hvidovre í B-deildinni í Danmörku. AB er í 7. sætimeð sex stig eftir fimm umferðir.
Hörður Björgvin Magnússon var ónotaður varamaður í 1-0 tapi Atromitos gegn Olympiakos í fyrstu umferð grísku deildarinnar.