Fotbolti.net
22.08.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - Barist í báðum Lengjudeildum

Ísland í dag - Barist í báðum Lengjudeildum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verða ellefu leikir spilaðir í íslenska boltanum í dag, þar af eru átta í Lengjudeildunum.
Það ríkir spenna fyrir lokaumferðirnar bæði í karla- og kvennaflokki. Karlamegin eiga HK og Þróttur innbyrðisviðureign í toppbaráttunni áður en Fylkir og Grindavík eigast við í afar mikilvægum leik fyrir bæði lið sem eru í sitthvorri baráttunni.

Vestri spilar svo við Leikni R. í neðri hlutanum áður en toppbaráttulið Njarðvíkur tekur á móti fallbaráttuliði Völsungs sem hefur verið á miklu skriði undanfarnar vikur.

Í kvennaflokki er hörð barátta um 2. sætið þar sem fimm stig skilja fimm lið að í efri hlutanum. KR situr í öðru sætinu sem stendur, tveimur stigum fyrir ofan Hauka og þremur stigum fyrir ofan Selfoss og HK.

Lengjudeild karla
14:00 HK-Þróttur R. (Kórinn)
14:00 Fylkir-Grindavík (tekk VÖLLURINN)
15:00 Vestri-Leiknir R. (Kerecisvöllurinn)
16:00 Njarðvík-Völsungur (JBÓ völlurinn)

Lengjudeild kvenna
14:00 Selfoss-ÍA (JÁVERK-völlurinn)
14:00 KR-FHL (Meistaravellir)
16:00 Völsungur-Haukar (GPG völlurinn)
16:00 Tindastóll-HK (Sauðárkróksvöllur)

2. deild karla
14:00 KFG-Kormákur/Hvöt (Miðgarður)

5. deild karla - A-riðill
17:00 Afríka-Þorlákur (Þróttheimar)

5. deild karla - B-riðill
14:00 Stokkseyri-Léttir (Stokkseyrarvöllur)
Ísland í dag - Barist í báðum Lengjudeildum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding19+2939
2Þróttur R.19+2137
3Fylkir19+734
4HK19+932
5Njarðvík19+632
6Grótta19-127
7Leiknir R.19+225
8ÍR20-525
9Vestri19-1124
10Grindavík19-621
11Völsungur19-1220
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.